Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, er kominn í mark í hálfu maraþoni á tímanum 01:48:40. Þetta er í 16. sinn sem Guðni hleypur hálft maraþon í Reykjavíkurmaraþoni, að því er fram kemur í tilkynningu frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur.
Þetta er þó ekki eina hlaup Guðna í sumar, því hann hljóp hálft maraþon í Jökulsárhlaupinu fyrr í mánuðinum.
Besti tími Guðna í hálfu maraþoni í Reykjavíkurmaraþoninu var árið 2014, en þá hljóp hann á 1:39:58, en flestir tímar hans hafa verið frá 1:40 til 2:00 klst.
Hér er hægt að fylgjast með tímum hlaupara sem eru að streyma í mark.