Stefán Karl var sönn þjóðargersemi

Stefán Karl Stefánsson.
Stefán Karl Stefánsson. mbl.is/Rax

„Ég vona bara að ég geti deilt reynslu minni með jákvæðum hætti því lífið er núna,“ sagði Stefán Karl Stefánsson leikari í samtali við menningardeild Morgunblaðsins í október á síðasta ári. Stefán Karl lést í fyrradag eftir tveggja ára baráttu við gallgangakrabbamein, 43 ára að aldri.

Í október hafði hann lokið sýningu á leiksýningunni Með fulla vasa af grjóti sem sýnd var í beinni útsendingu á RÚV, örfáum vikum eftir tvo erfiða holskurði, geisla- og lyfjameðferðir vegna meinsins.

Leikararnir Stefán Karl Stefánsson og Hilmir Snær Guðnason.
Leikararnir Stefán Karl Stefánsson og Hilmir Snær Guðnason. mbl.is/Árni Sæberg

„Lífið er núna“ eru slagorð Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þess. „Þessi slagorð urðu mér hvatning til að drífa mig af stað í hringferð um landið í því skyni að búa til minningar með fjölskyldunni. Ég veit ekkert hvað ég á langt eftir – en það veit svo sem enginn. Slagorðið gildir fyrir allt og alla. Lífið er núna, hvort sem þú ert með krabbamein, glímir við önnur veikindi eða heldur að þú sért fullkomlega frískur,“ sagði Stefán Karl, sem fullyrða má að elskaður hafi verið af íslensku þjóðinni.

Á ferli sínum tókst honum oftar en ekki að kitla hláturtaugar áhorfenda og var hann fyrr á þessu ári sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt til íslenskrar leiklistar og samfélags, en hann var einnig ötull baráttumaður gegn einelti og stofnandi samtakanna Regnbogabarna. Í viðtali við Morgunblaðið, skömmu eftir að Stefán Karl greindist með krabbamein, sagði Ari Matthíasson þjóðleikhússtjóri að hann væri þjóðargersemi.

Stefán Karl og Steinunni Ólína - mynd af Facebook síðu …
Stefán Karl og Steinunni Ólína - mynd af Facebook síðu Steinunnar

Tíminn það dýrmætasta í lífinu

Í mars á þessu ári lét krabbinn aftur á sér kræla og þá varð ljóst að meinið væri ólæknanlegt. „Það er ekki fyrr en manni er sagt að maður muni deyja fljótlega, sem maður áttar sig á hve stutt lífið er. Tíminn er það dýrmætasta í lífinu því hann kemur aldrei aftur og hvort sem maður eyðir honum í örmum ástvina eða í fangelsisklefa, þá er lífið það sem maður nýtir tímann í. Látið ykkur dreyma stóra drauma,“ skrifaði Stefán Karl til fylgjenda sinna á samfélagsmiðlum fyrr á þessu ári.

Alþjóðlega athygli vakti leikur Stefáns Karls í Latabæ, sjónvarpsþáttum sem sýndir voru um heim allan, og söngleiknum „Þegar Trölli stal jólunum“ sem sýndur var í Bandaríkjunum og Kanada. Í takt við heimsaðdáun á Stefáni Karli hefur fjöldi erlendra fjölmiðla greint frá andláti hans þ. á m. BBC, CNN, Daily Mail, Metro og Mirror.

„Orðstír deyr aldrei“

Fjölmargir vinir Stefáns Karls hafa minnst hans, þ. á m. bandaríska leikkonan Julianna Rose Mauriello, sem lék Sollu stirðu á móti Stefáni í Latabæjarþáttunum. „Andlát skilja eftir sig hjartasár sem aldrei gróa, en ást lætur eftir sig minningar sem enginn getur stolið. Ég mun alltaf dansa við hlið þér og ég veit þú ert ekki einn, mamma mín og amma eru hjá þér. Gerðu það, vaktu yfir mér og ég mun reyna að vera sterk,“ skrifaði hún.

Stefán Karl Stefánsson og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir.
Stefán Karl Stefánsson og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir. mbl.is/Golli

„Orðstír deyr aldrei. Orðstír lifir. Þess vegna mun Stefán Karl Stefánsson lifa í minningu og vitund okkar sem vorum svo heppin að fá að kynnast honum,“ skrifaði Gunnar Helgason leikari.

Leiklistarferill Stefáns Karls hófst í grunnskóla Hafnarfjarðar þar sem hann lék í skólaleikritum. 12 ára gamall fór hann að leika með Leikfélagi Hafnarfjarðar í unglingadeild leikfélagsins. Með leikfélaginu lék hann m.a. í leikritunum Hróa hetti, Mó Mó og Hans og Grétu.

Hóf hann nám við Leiklistarskóla Íslands árið 1995 og útskrifaðist árið 1999. Sama ár fékk hann fastráðningu við Þjóðleikhúsið. Á starfsferlinum kom hann víða við og strax á upphafsárum sínum í leikhúsinu lék hann tannlækninn í Litlu hryllingsbúðinni, drykkjumann, föður kerlingar og Pál postula í Gullna hliðinu, Fílóstratus og Bokka í Draumi á Jónsmessunótt og Jepíkhodov í Kirsuberjagarðinum. Þá fór hann með eitt aðalhlutverka í Syngjandi í rigningunni.

Miklar vinsældir vakti frammistaða þeirra Stefáns Karls og Hilmis Snæs Guðnasonar í Með fulla vasa af grjóti árið 2000 sem sýnt var 160 sinnum. Aftur var sýningin sýnd árið 2012 og síðast árið 2017. Stefán Karl lék titilhlutverk í leikritinu Glanni glæpur í Latabæ árið 1999, en leiksýningin varð innblástur sjónvarpsþáttaraðarinnar Latibær (e. Lazy town) sem framleiddir voru fyrir börn um allan heim. Í þáttunum túlkaði Stefán Karl Glanna glæp áfram. Á þeim vettvangi naut hann mikilla vinsælda fólks um heim allan.

Árið 2009 tók Stefán Karl við hlutverki Trölla í söngleiknum Þegar Trölli stal jólunum, sem sýndur var í Bandaríkjunum og Kanada á árunum 2008 til 2015.

Söngrödd Stefáns Karls var stórgóð og þótti hann einnig afbragðsgóð eftirherma. Gat hann brugðið sér í allra kvikinda líki og í tónlistargagnrýni í Morgunblaðinu um plötuna Jaba Daba Dúúú!!! sagði Arnar Eggert Thoroddsen Stefán Karl vera „mann hinna þúsund radda“.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert