Fyrir Héraðsdómi Suðurlands á Selfossi fer í dag fram aðalmeðferð í máli Vals Lýðssonar, sem ákærður er fyrir að hafa orðið bróður sínum, Ragnari Lýðssyni, að bana á bænum Gýgjarhóli II í Bláskógabyggð aðfaranótt 31. mars sl.
Valur er ákærður fyrir manndráp, en samkvæmt ákæru í málinu sló hann bróður sinn ítrekað í bæði höfuð og líkama, auk þess að sparka og/eða trampa á honum, meðal annars á höfði hans. Valur var búsettur að Gýgjarhóli II en bróðir hans var þar í heimsókn og höfðu þeir setið að drykkju. Valur hefur borið fyrir sig minnisleysi í yfirheyrslum hjá lögreglu.
Ragnar hlaut alvarlegan höggáverka ofarlega vinstra megin á enni, sem olli sári á hörundi, blæðingu innan í höfuðkúpu og snöggri breytingu á meðvitundarstigi. Af höggáverkanum hlutust einnig ógleði, svimi og uppköst. Þetta leiddi til þess að Ragnar lést, af banvænni innöndun magainnihalds.
Í greinargerð verjanda Vals er þess krafist að Valur verði sýknaður af manndrápsákæru, eða sakfelldur fyrir líkamsárás, þar sem ákæruvaldinu hafi ekki tekist að sanna að Valur hafi banað bróður sínum af ásettu ráði.
Valur hringdi sjálfur á lögreglu og tilkynnti um að bróðir hans væri liggjandi í blóði sínu á gólfinu. Í greinargerð verjandans segir að ekki hafi verið hægt að sanna ásetning Vals, og því bætt við að hann hafi mögulega ruglast á bróður sínum og innbrotsþjófi í ölæði.
Verjandi Vals segir að ákæruvaldið byggi ákæruna að miklu leyti á símtali Vals í Neyðarlínuna, þar sem hann virðist játa. Ekki sé hægt að gera það, enda hafi Vali verið brugðið og hann í annarlegu ástandi.
Aðalmeðferðin hefst kl. 9:00 í dómsal Héraðsdóms Suðurlands á Selfossi. Blaðamaður mbl.is verður á staðnum og greinir frá því sem fram fer.