Tilkynnt var um eldsvoða í sumarhúsi á Þingvöllum, Grafningsmegin, skömmu fyrir hádegi og eru fyrstu viðbragðsaðilar komnir á vettvang, að sögn Péturs Péturssonar, slökkviliðsstjóra í Árnessýslu.
Pétur segir að slökkvistarf sé ekki hafið en fyrstu fréttir bendi til þess að húsið sé alelda.