Trampólín fuku á Suðurnesjum

Björgunarstarfsmenn eltast við trampólín.
Björgunarstarfsmenn eltast við trampólín. Ljósmynd/Jónas Guðmundsson

Tvö trampólín fuku af stað í rokinu á Suðurnesjum í gær, annað í Keflavík en hitt í Njarðvík.

Lögreglan kom öðru þeirra í skjól áður en skaði hlaust af ferðalagi þess. Hitt fauk á bifreið og skemmdi hana áður en hægt væri að stöðva það, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Þá hófust léttar gipsplötur á loft og lentu á götu í Grindavík.

Lögregla beinir þeim tilmælum til eigenda trampólína og annarra lausamuna að ganga vel og tryggilega frá þeim áður en haustlægðirnar fara að banka á dyrnar með tilheyrandi hvassviðri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert