„Þetta mál er í forgangi,“ segir Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglunni á bárust tvær tilkynningar um að veist hefði verið að stúlkum í Garðabæ milli klukkan 16.00 og 18.00 í gær.
Ráðist var á stúlku á fimmtudag á svipuðum stað og veist var að stúlkunum í gær, á göngustíg við Arnarnesmýri, meðfram Gullakri og Góðakri.
Fyrir um tveimur vikum var ráðist á átta ára stúlku sem var á gangi með hund og einnig var ráðist á tíu ára stúlku í desember í fyrra þar sem hún var á gangi. Var hún tekin hálstaki, gripið um munn hennar og hún dregin í burtu.
Stúlkurnar sem ráðist var á í gær gátu lýst árásarmanninum og voru lýsingar þeirra áþekkar lýsingum hinna stúlknanna. Margeir segir að málið sé rannsakað þannig að mögulega sé sami maður að verki í öll skiptin.
„Við reynum að finna út hver gæti verið á ferð þarna og vinnum eftir gögnum og ábendingum sem við höfum,“ segir Margeir og bætir við að lögregla líti málið alvarlegum augum.