Drengurinn, sem gaf sig fram við lögreglu, er sá sem lýst var eftir í fjölmiðlum vegna rannsóknar lögreglu á árásum á stúlkur í Garðabæ.
Um er að ræða barn sem hefur ekki náð sakhæfisaldri, 15 árum. Því er málið unnið í nánu samstarfi við Barnavernd Garðabæjar og bæjaryfirvöld, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglu.
Rannsókn málsins miðar vel en ljóst er að hún muni taka tíma, segir í tilkynningu lögreglu. Lögreglan vill þakka alla þá aðstoð sem henni hefur borist og þeim sem hafa veitt upplýsingar vegna málsins.
Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglu, segir við mbl.is að lögregla telji sig vera á réttri leið með rannsókn málsins.
Ekki er þó ljóst hvort drengurinn sem gaf sig fram við lögreglu sé tengdur öllum málunum fimm sem lögregla hefur rannsakað í Garðabæ.
Drengurinn er undir sakhæfisaldri, 14 ára gamall, og segir Karl að lögregla hafi þurft að byrja að nálgast málið með eilítið öðruvísi hætti eftir að í ljós kom hve ungur hann er.
Fimm árásir á ungar stúlkur í Garðabæ hafa verið tilkynntar til lögreglu, ein í desember síðastliðnum og síðan fjórar núna í ágústmánuði.
Í umfjöllun mbl.is um fyrstu árásina, sem átti sér stað í desember, kom fram að þá hefði verið talið að árásarmaðurinn væri á aldrinum 17-19 ára gamall. Hann greip í tíu ára gamla stúlku, hélt fyrir munn hennar og reyndi að draga hana afsíðis, er hún var á gangi við Löngumýri ásamt tveimur vinkonum sínum.
Fyrir um tveimur vikum var ráðist á átta ára stúlku þar sem hún var á göngu með hund sinn í bænum og hún slegin.
Síðasta fimmtudag, 23. ágúst, var svo tilkynnt um árás á barnunga stúlku á svipuðum slóðum, eða á göngustígum neðan við og meðfram Gullakri og Góðakri.
Það var síðan á þriðjudag sem veist var að tveimur stúlkum til viðbótar, í tveimur ótengdum atvikum.
Þær árásir áttu sér stað á svipuðum slóðum, á göngustíg við Arnarnesmýri. Veist var að stúlkunum með einhverjum hætti á milli kl. 16 og 18 á þriðjudag og samkvæmt upplýsingum frá lögreglu gátu þær lýst árásarmanninum. Lýsingar þeirra voru áþekkar lýsingum hinna stúlknanna, sem áður hafði verið ráðist á nú í ágústmánuði.
Atburðarásin í árásunum á þriðjudag var sambærileg þeirri á fimmtudaginn fyrir sléttri viku, að sögn Margeirs Sveinssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Í samtali við Morgunblaðið í gær sagði hann að rannsókn lögreglu hefði ekki gengið út frá því að þarna væri um einn og sama árásarmanninn að ræða í öllum tilvikum. Það væri hins vegar einn möguleikanna.