Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar tveggja manna í tengslum við alvarlega líkamsárás sem dyravörður á skemmtistaðnum Shooters varð fyrir aðfaranótt sunnudags.
Fjórir menn hafa setið í gæsluvarðhaldi vegna málsins síðan á sunnudag en Rúv greinir frá því að einum hafi verið sleppt úr haldi í dag. Aðild mannsins að málinu er enn til rannsóknar.
Dyravörðurinn liggur alvarlega slasaður á spítala en hann hlaut mænuskaða í árásinni. Mennirnir þrír sem enn eru í gæsluvarðhaldi hafa allir verið yfirheyrðir og líkt og fyrr segir leitar lögreglan nú tveggja til viðbóta vegna rannsóknar málsins.