Hollenska skemmtiferðaskipið Zuiderdam hélt úr Sundahöfn í gær. Skipið var þá að ljúka þriðju og síðustu ferð sinni til landsins í sumar.
Fjölmörg önnur skemmtiferðaskip eru væntanleg til landsins í september. Síðasta skipið kemur til Reykjavíkur í seinni hluta októbermánaðar.