Barnahús fær fjórar milljónir í afmælisgjöf

Ásmundur Einar Daðason ásamt Mörtu Santos Pais, sérlegum sendifulltrúa framkvæmdastjóra …
Ásmundur Einar Daðason ásamt Mörtu Santos Pais, sérlegum sendifulltrúa framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna varðandi ofbeldi gegn börnum Ljósmynd/Stjórnarráðið

Á 20 ára afmælisráðstefnu Barnahúss tilkynnti Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, um fjögurra milljóna króna styrk til Barnahúss sem hann, dómsmálaráðherra og lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hefðu ákveðið að veita Barnahúsi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Ásmundur ræddi hvernig tilkoma Barnahúss hefði leitt til grundvallarbreytingar á meðferð mála þar sem grunur léki á að börn hefðu verið misnotuð, auk þess sem skilningur samfélagsins á þörfum barna og mikilvægi barnaverndar hefði aukist og þroskast með starfsemi þess. Hann sagði það ekki síst að þakka þeirri þverfaglegu nálgun sem innleidd var með starfsemi Barnahúss.

Að afmælisráðstefnunni lokinni hófst norræn ráðstefna um velferð barna, en yfir 400 sérfræðingar eru skráðir til þátttöku. Ráðherra flutti setningarávarp við upphaf ráðstefnunnar og gerði meðal annars að umtalsefni áherslu sína á málefni barna, samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins og mikilvægi snemmtækrar íhlutunar.

Hann boðaði aukið samstarf milli ráðuneyta, stofnana og sveitarfélaga með það að markmiði að brjóta niður múra milli kerfa, bæta þjónustu í þágu barna og skapa barnvænt samfélag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert