Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, neitaði sök við þingfestingu peningaþvættismáls gegn honum sem héraðssaksóknari höfðaði. „Ég er saklaus,“ sagði Júlíus þegar dómari óskaði eftir afstöðu hans.
Í þingfestingunni var verjanda Júlíusar gefinn frestur til að kynna sér gögn málsins aðeins nánar, en hann sagði möguleika á að lögð yrðu fram frekari gögn af hálfu varnarinnar.
Eftir að þingfestingu lauk sagði Júlíus í stuttu samtali við fjölmiðla að hann myndi ekki tjá sig nánar um málið að svo stöddu, hann væri hins vegar til í að tala við fjölmiðla nánar þegar málið væri búið. Sagðist hann alveg viss um að hafa sigur í málinu.
Júlíus er ákærður fyrir peningaþvætti með því að hafa geymt á erlendum bankareikningi sínum fjárhæðir að andvirði 131 til 146 milljónir króna, sem voru að hluta til ávinningur refsiverðra brota, og ráðstafað þeim á bankareikning hjá vörslusjóðs í Sviss. Í ákæru málsins kemur fram að Júlíus hafi geymt fjármagnið í Bandaríkjadölum, evrum og sterlingspundum, á bankareikningi sínum hjá bankanum UBS á aflandseyjunni Jersey í Ermarsundi á árunum 2010 til 2014.
Þá er hann sagður hafa ráðstafað umræddum fjármunum inn á bankareikning sem tilheyrði vörslusjóðnum Silwood Foundation í bankanum Julius Bär í Sviss. Rétthafar vörslusjóðsins voru Júlíus, eiginkona hans og börn.
Um var að ræða tekjur sem honum höfðu hlotnast nokkrum árum fyrr en ekki talið fram til skatts. Því greiddi hann ekki tekjuskatt, útsvar eða vexti af fjármununum. Í ákærunni segir að fjárhæð hins ólögmæta ávinnings sem Júlíus kom sér undan að greiða og vextir af því fé hafi verið á bilinu 49 til 57 milljónir króna.
Í ákærunni segir að við rannsókn málsins hafi Júlíus viðurkennt að fjármagnið væri tekjur sem hann hefði ekki gefið upp til skatts og því ekki greitt af þeim útsvar eða tekjuskatt.
Þar segir þó að Júlíus neiti að gera nánari grein fyrir því hvenær teknanna var aflað og því sé ekki hægt að finna út nákvæman ávinning hans.
„Hann hefur hins vegar ekki viljað segja nákvæmlega til um það hvenær umræddra tekna var aflað og því er ekki hægt að segja með fullkominni vissu hver ávinningurinn var þar sem hlutfall tekjuskatts og útsvars af tekjuskattsstofni var breytilegt á árunum fyrir 2006.“