Eldisfiskar bárust í fráveituna

Slysaslepping á regnbogasilungi átti sér stað í eldisstöð N-lax að …
Slysaslepping á regnbogasilungi átti sér stað í eldisstöð N-lax að Auðbrekku í Húsavík í síðasta mánuði. Mynd úr safni. mbl.is/Einar Falur Ingólfsson

Slysaslepping á regnbogasilungi átti sér stað í eldisstöð N-lax á Auðbrekku á Húsavík í síðasta mánuði. Forsvarsmenn eldisstöðvarinnar tilkynntu hins vegar ekki um sleppinguna líkt og þeim er skylt lögum samkvæmt. Frá þessu er greint á vef Matvælastofnunar (MAST).

„Við slátrun úr einu keri fyrirtækisins losnaði rist af niðurfallsröri í kerinu og fiskar komust í frárennsli stöðvarinnar sem rennur í fráveitukerfi Húsavíkur. Fyrir liggur að eldisfiskar bárust í fráveitu bæjarins,“ segir í frétt MAST.

Umfang slysasleppingarinnar er óljóst, en það er þó ekki talið hafa verið verulegt. Samkvæmt upplýsingum frá N-lax megi hins vegar ætla að um 300 regnbogasilungar hafi verið í kerinu þegar atvikið átti sér stað og uppgefnar sláturtölur gefa til kynna að hátt hlutfall þeirra hafi skilað sér í slátrun.

Engin hreinsun er í fráveitukerfinu og því er ekki hægt að útiloka að lifandi fiskur hafi borist til sjávar. Eldisfiskurinn er hins vegar ófrjór og getur því ekki fjölgað sér í íslenskri náttúru.

„Kveikjan að rannsókn málsins var ábending til Matvælastofnunar í lok síðustu viku um slysasleppingu hjá N-lax. Við eftirlit Matvælastofnunar 4. september sl. var farið yfir atburðarás atviksins, búnað og viðbrögð fyrirtækisins. Viðbrögð fyrirtækisins voru ekki skv. skráðu verklagi þess. Jafnframt var Fiskistofu ekki tilkynnt um sleppinguna eins og lög kveða á um. Matvælastofnun tilkynnti Fiskistofu um málið og er það til áframhaldandi skoðunar,“ segir í fréttinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert