Viljayfirlýsing um aukið samstarf í þágu barna

Ráðherrarnir Sigurður Ingi Jóhannsson, Sigríður Á. Andersen, Ásmundur Einar Daðason, …
Ráðherrarnir Sigurður Ingi Jóhannsson, Sigríður Á. Andersen, Ásmundur Einar Daðason, Svandís Svavarsdóttir og Lilja Alfreðsdóttir sjást hér undirrita yfirlýsinguna. Ljósmynd/Aðsend

Ráðherrar félags- og jafnréttismála, heilbrigðismála, mennta- og menningarmála, dómsmála, samgöngu- og sveitarstjórnarmála og Samband íslenskra sveitarfélaga lýsa yfir vilja til þess að auka samstarf milli málefnasviða sem undir hvern og einn aðila heyra og snúa að velferð barna.

Markmiðið er að brjóta niður múra sem kunna að myndast á milli kerfa þegar tryggja þarf börnum heildstæða og samhæfða þjónustu. Aðilar viljayfirlýsingarinnar telja að aukið samstarf sé nauðsynlegt í þeim tilgangi að setja börn í forgrunn þjónustulausna og til þess fallið að skapa raunverulega barnvænt samfélag, að því er fram kemur í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu.

Um útfærslu samstarfsins og framkvæmd viljayfirlýsingarinnar fer samkvæmt aðgerðaáætlun sem unnin verður sameiginlega af ofangreindum aðilum, en yfirmarkmið þeirrar aðgerðaáætlunar skal vera að setja börn sem njóta þjónustu á vegum aðila í forgrunn og vinna saman að velferð þeirra. 

Viljayfirlýsingin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert