Ný bæjarstjóri á Akureyri, Ásthildur Sturludóttir, kom til starfa í Ráðhúsi Akureyrarbæjar í morgun. Eiríkur Björn Björgvinsson, fráfarandi bæjarstjóri, mælti sér mót við Ásthildi til að afhenda henni lyklana að skrifstofu bæjarstjóra.
Ásthildur átti einnig stuttan fund með Höllu Björk Reynisdóttur, forseta bæjarstjórnar, að því er fram kemur á vef Akureyrarbæjar.
Greint var frá því í sumar að ákveðið hefði verið að ganga til samninga við Ásthildi um að taka að sér starf bæjarstjóra á Akureyri. Hún tekur við af Eiríki sem hefur verið bæjarstjóri síðustu átta ár.