Málefni Orkuveitu Reykjavíkur og Orku náttúrunnar verða tekin fyrir á fundi borgarráðs á morgun. „Hugmyndin er að borgarráð fái upplýsingar um stöðu mála og hvernig stjórnin sér fyrir sér næstu vikur,“ segir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, borgarfulltrúi Viðreisnar og formaður borgarráðs, í samtali við mbl.is.
Stjórn OR samþykkti á fundi sínum í kvöld að fallast á ósk Bjarna Bjarnasonar forstjóra um að stíga til hliðar á meðan fram fer óháð úttekt á vinnustaðarmenningu og málefnum tiltekinna starfsmanna sem verið hafa til umfjöllunar. Í hans stað verður Helga Jónsdóttir starfandi forstjóri um tveggja mánaða skeið, frá næsta mánudegi.
Þórdís Lóa hafði áður sagt í samtali við mbl.is að mikilvægt væri að stjórn OR fengi tíma til þess að vinna úr málunum, og að borgarráð myndi senda skýr skilaboð varðandi hvernig tekið yrði á málinu.