Aðalmeðferð í Aurum-holding-málinu svokallað hefst nú í dag fyrir Landsrétti og mun þinghald standa í tvo daga. Málið hefur verið tekið fyrir á öllum dómstigum og er þetta í fjórða skiptið sem málið kemur til úrlausnar dómstóla. Tekist er á um meint umboðssvik og hlutdeild í þeim í tengslum við 6 milljarða lánveitingu Glitnis til félagsins FS38 ehf.
Þeir Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóri Glitnis, og Magnús Arnar Arngrímsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs bankans, eru ákærðir fyrir umboðssvik vegna lánveitingarinnar. Þá er Jón Ásgeir Jóhannesson, sem var einn aðaleigandi bankans á þessum tíma, ákærður fyrir hlutdeild í umboðssvikum þeirra Lárusar og Magnúsar og til vara fyrir hylmingu og til þrautavara fyrir peningaþvætti, með því að hafa í krafti áhrifa sinna í Glitni beitt Lárus og Bjarna fortölum og þrýstingi og hvatt til þess, persónulega og með liðsinni Jóns Sigurðssonar, varaformanns stjórnar Glitnis Banka hf., og Gunnars Sigurðssonar, forstjóra Baugs Group, að veita umrætt lán. Er lánið sagt hafa verið Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og félaginu Fons til hagsbóta.
Tveir dagar fara í aðalmeðferðina, en fyrri hluta dags verða skýrslutökur yfir þeim Lárusi Welding, Jóni Ásgeiri og Pálma Haraldssyni, sem jafnan hefur verið kenndur við Fons. Óskaði verjandi Lárusar eftir því að taka skýrslu aftur af Lárusi og mun ákæruvaldið einnig gera það. Þá óskaði ákæruvaldið eftir að taka skýrslu af Jóni Ásgeiri og Pálma.
Gert er ráð fyrir því að málflutningur ákæruvaldsins fari svo fram síðari hluta dagsins og á morgun fari fram málflutningur verjenda þeirra Lárusar, Magnúsar og Jóns Ásgeirs. Að lokum má gera ráð fyrir einhverjum andsvörum.
Í málinu voru upphaflega fjórir ákærðir, en ríkissaksóknari ákvað að áfrýja ekki sýknudómi yfir Bjarna Jóhannessyni, fyrrverandi viðskiptastjóra hjá bankanum, og mun Landsréttur því dæma í máli þriggja.
Málið var fyrst tekið fyrir í héraðsdómi á fyrri hluta ársins 2014. Voru þá allir fjórir ákærðu sýknaðir. Málinu var áfrýjað til Hæstaréttar, en á þeim tíma var millidómstigið Landsréttur ekki komið til sögunnar.
Í apríl 2015 var dómur héraðsdóms ógiltur af Hæstarétti vegna þess að ummæli sérfróðs meðdómara í málinu voru talin gefa tilefni til þess að draga í efa að hann hafi verið óhlutdrægur í garð ákæruvaldsins fyrir uppkvaðningu dómsins. Dómarinn er einnig bróðir athafnarmannsins Ólafs Ólafssonar sem áður hafði verið sakfelldur í dómsmáli sérstaks saksóknara. Var í kjölfarið öllum dómurum málsins skipt út og fór aðalmeðferð fram haustið 2016.
Í nóvember 2016, þegar málið var tekið fyrir í annað skiptið í héraði, voru þeir Lárus og Magnús fundnir sekir í málinu. Jón Ásgeir og Bjarni voru hins vegar sýknaðir. Lárus hlaut eins árs fangelsi og Magnús tveggja ára dóm.
Þá var Lárus Welding dæmdur til að greiða 10,3 milljónir króna í málskostnað auk útlagðs kostnaðar. Magnús var dæmdur til að greiða 8,2 milljónir í málskostnað. Ríkissjóður dæmdur til að greiða 13,9 milljónir í málskostnað vegna sýknu Jóns Ásgeirs og 9,4 milljónir vegna sýknu Bjarna.
Verjendur hinna ákærðu hafa í vörn sinni meðal annars vísað til þess að þeir telji lánið sem deilt er um hafa bætt tryggingastöðu Glitnis en ekki aukið fjártjónsáhættu eins og ákæruvaldið byggir á. Þá hafa þeir ítrekað gagnrýnt langa málsmeðferð, en eftir tæplega 2 vikur verða tíu ár liðin frá fjármálahruninu árið 2008.
Við dómsuppkvaðningu héraðsdóms árið 2016 sagði Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs, að þótt hann væri ánægður með niðurstöðuna fyrir hönd síns skjólstæðings, þá kæmu sakfellingarnar á óvart. Þá sagði hann að Jón Ásgeir hafi samfellt í 15 ár verið í stöðu sakbornings og að alltaf kæmu upp ný mál sem enginn sómi væri af fyrir ákæruvaldið.