Gert er ráð fyrir að reglulegar siglingar nýs Herjólfs á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar hefjist 30. mars á næsta ári samkvæmt fréttatilkynningu frá Vegagerðinni. Þangað til mun núverandi herjólfur sigla á milli lands og Eyja.
Fram kemur að afhending nýju ferjunnar, sem er í smíðum hjá skipasmíðastöðinni Crist S.A. í Gdansk í Póllandi, hafi dregist meðal annars vegna breytinga á búnaði skipsins en einnig hafi orðið tafir hjá skipasmíðastöðinni. Ekki sé ljóst á þessum tímapunkti hver nákvæmur afhendingartími verði en miðað sé við að það verði öðru hvoru megin við áramótin.
„Hvorki rekstraraðilum né yfirvöldum hugnast vel að hefja rekstur á nýju og breyttu skipi um háveturinn og því er þessi tími valinn í lok mars. Tíminn frá afhendingu og þar til rekstur hefst verður notaður til prófana á sjólagi skipsins og til þjálfunar á áhöfn, en búnaður skipsins er talsvert breyttur frá gamla Herjólfi,“ segir enn fremur.