Búið að ná manninum á land

Frá Goðafossi.
Frá Goðafossi.

Búið er að ná manninum sem féll í Skjálfandafljót, nálægt Goðafossi, á land og er verið að flytja hann á Sjúkrahúsið á Akureyri. Lögreglan á Norðurlandi eystra greinir frá þessu á facebooksíðu sinni, en ekkert liggur fyrir um líðan mannsins.

Aðgerðum á staðnum er lokið, en Landhelgisgæslan og björgunarsveitir voru kallaðar út. Segir lögreglan að flestir viðbragðsaðilar séu nú á heimleið. Tildrög slyssins eru enn óljós en unnið er að rannsókn.  

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni var maðurinn fluttur með sjúkrabíl til Akureyrar. Þyrlunni hefur þó ekki verið flogið suður en hún er til taks ef ákvörðun verður tekin um að flytja manninn á Landspítalann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert