Flug milli Akureyrar og Keflavíkur hafið á ný

Fyrsta áætlunarflug vetrarins milli Akureyrar og Keflavíkur á vegum Air …
Fyrsta áætlunarflug vetrarins milli Akureyrar og Keflavíkur á vegum Air Iceland Connect fór í morgun frá Akureyri. Ljósmynd/Aðsend

Fyrsta áætlunarflug vetrarins milli Akureyrar og Keflavíkur á vegum Air Iceland Connect fór í morgun frá Akureyri, en flugfélagið tilkynnti fyrir nokkru að slíkt flug myndi hefjast aftur í haust, í tengslum við millilandaflug.

Flogið verður fjórum sinnum í viku. Frá Akureyri á mánudögum, miðvikudögum, fimmtudögum og föstudögum og frá Keflavík á mánudögum, miðvikudögum, fimmtudögum og sunnudögum.

Flogið verður á 37 sæta Bombardier Q200-vél og eru því tæplega 300 sæti í boði í hverri viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert