Sunday Times hefur birt afsökunarbeiðni á frétt blaðsins um mögulegt eldgos í Kötlu. Kemur fram í afsökunarbeiðninni að ekki hafi verið rétt haft eftir vísindamanninum, Evgenia Ilyinskaya, sem hefur rannsakað eldfjallið.
Ilyinskaya greinir frá afsökunarbeiðninni á Facebook en tekur fram að greinina sé enn að finna í netútgáfu Sunday Times en fyrirsögninni hafi verið breytt. Eins hafi það sem haft var eftir henni verið tekið út.