Eldur í togara á Halamiðum

Togarinn Frosti ÞH við bryggju.
Togarinn Frosti ÞH við bryggju. mbl.is/Sigurður Bogi

Eldur er um borð í togaranum Frosta ÞH sem er á Halamiðum, norðvestur af Vestfjörðum, um 60 mílur norðvestur af Aðalvík, samkvæmt heimildum mbl.is. Landhelgisgæslan hefur staðfest að eldur sé um borð í skipi á þessum slóðum og að aðgerð sé nú í gangi.

Tvær þyrlur eru á leiðinni á Halamið og mun önnur þeirra koma með reykkafara. Ekki liggur fyrir hversu mikill eldur er í togaranum.

Sjá staðsetningu Frosta ÞH á korti

Togararnir Sirrý frá Bolungarvík og Vigri eru í nágrenni við togarann Frosta og þá er varðskipið Týr á leið þangað að.

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarkall frá togskipinu Frosta ÞH229 klukkan 15:18 um að eldur væri laus í vélarrúmi skipsins, að því er fram kemur í tilkynningu frá Gæslunni. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru þegar kallaðar út, sem og varðskipið Týr sem var statt í Ísafjarðardjúpi.

Týr komi að skipinu fyrir klukkan 19

Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Gunnar Friðriksson, var einnig beðið um að halda á vettvang auk skipa í grenndinni. Togskipið var þá statt um 45 sjómílur vest-norðvestur af Straumnesi.

Tólf eru í áhöfn Frosta og kom fram að allir væru heilir á húfi en hugsanlegt sé að einn skipverji sé með reykeitrun.

Stundarfjórðungi eftir að neyðarkallið barst frá Frosta barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar tilkynning um að búið væri að einangra eldinn í vélarrúminu, en reykur væri um allt skip, nema í brúnni. 

TF-GNA, þyrla Landhelgisgæslunnar, er nú á leið á staðinn og er áætlað að hún verði komin að Frosta um klukkan 17:25. Hin þyrlan, TF-SYN, flaug vestur með fimm slökkviliðsmenn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og er gert ráð fyrir að hún verði komin að Frosta klukkan 18:00. Þá er áætlað að varðskipið Týr verði komið að skipinu laust fyrir klukkan 19:00.

Fari með einn til aðhlynningar á Ísafirði

Togarinn Sirrý ÍS36 var kominn að Frosta rétt fyrir klukkan fimm og er gert ráð fyrir að hann taki Frosta í tog.

Allar líkur eru á að TF-GNA flytji einn skipverja frá borði og fari með hann á Ísafjörð til aðhlynningar.

Gott veður er á svæðinu og munu skipin halda áleiðis í land en aðrar bjargir halda sínu striki. Slökkviliðsmennirnir sem koma með TF-SYN munu kanna hvort eldurinn lifi enn í vélarrýminu.

Sjá staðsetningu Frosta ÞH á korti

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert