Saksóknari í máli ákæruvaldsins gegn Sveini Gesti Tryggvasyni fer fram á þyngri refsingu yfir Sveini Gesti en aðalmeðferð fór fram í málinu í Landsrétti í dag. Sveinn Gestur var dæmdur í sex ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stórfellda líkamsárás í tengslum við andlát Arnars Jónssonar Aspar.
Þeim dómi var áfrýjað og málið tekið fyrir í Landsrétti.
Farið er fram á þyngri refsingu vegna alvarlegra afleiðinga og sagði saksóknari að brot gegn 218. grein hegningarlaga varði allt að 16 ára fangelsi.
Saksóknari fór einnig fram á að Sveinn Gestur verði dæmdur til að greiða allan sakarkostnað í héraði og áfrýjunarkostnað. Bætti saksóknari við að Sveinn Gestur hafi rofið 8 mánaða skilorðsdóm, bundinn til þriggja ára, með broti sínu.
Saksóknari sagði að framburður Sveins í málinu hefði tekið sífelldum breytingum frá fyrstu skýrslutöku. Sérstaklega nefndi saksóknari breytingar er varða þátt Jóns Trausta Lútherssonar, sem var handtekinn upphaflega í tengslum við málið.
Nefndi saksóknari að í fyrstu skýrslutöku hjá lögreglu, sama kvöld og atvikið átti sér stað, hafi Sveinn sagt að hann hafi ekki fylgst með því sem fór á milli Arnars og Jóns Trausta og að Sveinn hafi bara tekið við Arnari af Jóni Trausta.
Framburður Sveins fyrir dómi stangist á við það sem hann sagði í fyrstu tveimur skýrslutökum hjá lögreglu, þar sem hann sagðist ekki nákvæmlega hafa séð samskipti Jóns og Arnars.
Sjálfur sagði Sveinn í morgun að hann hefði alltaf sagt satt og rétt frá og að hann vonaði að rannsókn lögreglu myndi leiða hlut Jóns Trausta í ljós.
Saksóknari tekur það ekki trúanlegt að Sveinn hafi verið að hlífa Jóni Trausta í fyrstu skýrslutökunum. Hann sagði að framburður Sveins í málinu væri ótrúverðugur og í andstöðu við framburð vitna í málinu.
Árásin hafi verið gróf og afleiðingarnar alvarlegar. Sveinn hafi reynt að fegra sinn hlut en að mati saksóknara er alvarlegra að hann hafi reynt að varpa sök á annan mann. Tekið var fram að það ætti að meta það til refsiþyngingar í málinu.
Að sögn réttargæslumanna fer Heiðdís Helga Aðalsteinsdóttir, unnusta Arnars, fram á að Sveinn greiði henni 21.759.535 krónur í miska- og skaðabætur með vöxtum.
Einnig er farið fram á að ákærði greiði ungri dóttur Arnars og Heiðdísar Helgu rúmar 18 milljónir króna í bætur með vöxtum.
Að sögn saksóknara fara foreldrar Arnars fram á samtals 9 milljónir króna í miskabætur, auk útfararkostnaðar. Fimmtán ára dóttir Arnars fer fram á 5 milljónir króna í miskabætur.