Með morgninum nálgast lægð úr suðri og mun fara að hvessa sunnanlands upp úr hádegi með rigningu. Gular viðvaranir eru í gildi fyrir vind frá því um kl. 15 og eiga einkum við undir Eyjafjöllum og í Öræfum þar sem hviður geta farið yfir 35 m/s. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands í morgun.
„Þegar líður á daginn hvessir einnig annars staðar og fer að rigna þó að áhrifin af þessari lægð muni verða mest með suðurströndinni í dag.
Í kvöld snýst vindurinn til norðlægrar áttar og bætir í hann um landið norðanvert, fyrst á Vestfjörðum þar sem útlit er fyrir norðaustanstorm með snjókomu í nótt og fram eftir degi á morgun. Gul viðvörun fyrir hríð er í gildi á þeim slóðum.
Í nótt bætir einnig í úrkomuna annars staðar á N-verðu landinu, en eftir því sem austar er farið frá Vestfjörðum breytist hún úr snjókomu í rigningu. Það má segja að á Tröllaskaga verði skilin en þar má búast við snjókomu, slyddu eða rigningu á láglendi á morgun. Þar verður einnig mesta úrkoman, á Tröllaskaga og að Skjálfanda.
Norðanáttin gengur niður á föstudag og um helgina kemur ný lægð með rigningu og hlýnandi veðri,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.
Vaxandi austlæg átt með morgninum, austan og norðaustan 13-23 m/s eftir hádegi með rigningu eða slyddu, fyrst syðst. Hvassast með S-ströndinni.
Norðlægari í kvöld og bætir í vind um landið N-vert. Norðaustanhvassviðri eða -stormur N- og NV-til í nótt og á morgun með snjókomu. Lengst af hægari vindur A-lands með rigningu og styttir upp sunnan heiða. Allhvöss norðanátt um allt land annað kvöld og áfram úrkoma fyrir norðan. Hiti 1 til 9 stig, mildast syðst.
Á fimmtudag:
Norðanhvassviðri eða stormur N- og NV-til með slyddu eða snjókomu, lengst af mun hægari vindur um landið A-vert og rigning, en styttir upp S-lands þegar líður á daginn. Hiti frá frostmarki í innsveitum fyrir norðan, upp í 8 stig syðst. Hægari um kvöldið.
Á föstudag:
Minnkandi norðanátt og léttir víða til, en él NA-til. Kalt í veðri.
Á laugardag:
Gengur í hvassa suðaustanátt með rigningu eða slyddu S- og V-lands, annars úrkomulítið. Hægari V-til um kvöldið. Hlýnar í veðri.
Á sunnudag, mánudag og þriðjudag:
Útlit fyrir suðlæga átt með skúrum eða éljum, en léttir víða til á N- og A-landi. Fremur svalt í veðri.