495.000 hærri laun með því að flytja

Höfuðborgin er eitt 66 sveitarfélaga með hámarksútsvar.
Höfuðborgin er eitt 66 sveitarfélaga með hámarksútsvar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þeir sem í fyrra bjuggu í sveitarfélagi sem lagði á hámarksútsvar greiddu 20.800 krónum meira í útsvar af hverri milljón sem þeir öfluðu en þeir sem bjuggu í sveitarfélagi sem lagði á lágmarksútsvar.

Þetta samsvarar skattalækkun upp á 312.000 krónur fyrir hjón með 15 milljónir í tekjur og því má ætla að þau gætu hækkað kaupið sitt um 495.000 krónur á ári með því að flytja í annað sveitarfélag.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Páll Kolbeins, sem ritar grein í Tíund, blað ríkisskattstjóra, myndi það nema 3,3% kauphækkun.

Uppfært: Í upphaflegri frétt Morgunblaðsins var tekið dæmi af hjónum með 15 milljónir í árstekjur og sagt réttilega að 312.000 krónum munaði á skattgreiðslum þeirra á ári eftir því hvort þau væru búsett í sveitarfélagi með lágmarks- eða hámarksútsvar.

Var því haldið fram að aukning ráðstöfunartekna hjónanna, sem fylgdi því að flytja á milli sveitarfélaganna, jafngilti launahækkun upp á 892.592 krónur á ári. Hið rétta er að hún jafngildir launahækkun upp á rúmar 495.000 krónur á ári, en röng upphæð kom fram í Tíund. Hefur fréttin verið lagfærð samkvæmt þessu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert