Pálmi Haraldsson, kenndur við Fons hf., segist ekki hafa vitað af því fyrr en einu til einu og hálfu ári seinna að einn milljarður króna, sem Jón Ásgeir fékk í tengslum við Aurum Holding-málið svokallaða, hafi farið í að greiða yfirdrátt hins síðarnefnda hjá Glitni.
Þetta kemur fram í skýrslutöku Pálma hjá sérstökum saksóknara árið 2011. Þar segir Pálmi að hefði hann vitað af þessari ráðstöfun Jóns Ásgeirs hefði hann ekki tekið þátt í viðskiptunum og að það sé bæði „fáránlegt“ og „absúrd“ að hann hafi verið að taka lán til að greiða yfirdrátt Jóns Ásgeirs.
Í tölvupóstssamskiptum stjórnenda og starfsmanna Glitnis, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, kemur hins vegar fram að Jón Ásgeir fékk ítrekað að hækka yfirdrátt sinn hjá Glitni árið 2008, m.a. á þeim grundvelli að hann myndi fá milljarð frá Pálma þegar hlutur hans í Aurum hefði verið seldur. Pálmi segist hins vegar hafa trúað því að hann væri að láta Jón Ásgeir fá milljarð króna gegn skuldabréfi í félaginu Þú Blásól ehf., sem var þá í eigu Jóns Ásgeirs.
Jón Ásgeir greiddi hins vegar yfirdrátt sinn hjá Glitni sama dag og lán bankans vegna kaupa á skartgripafélaginu Aurum var veitt.
Þetta kemur fram í ítarlegri yfirferð Morgunblaðsins yfir Aurum-málið, sem hefur verið í um sex ár fyrir dómstólum. Niðurstaða í Landsrétti er væntanleg á næstu dögum, að því er fram kemur í ítarlegri umfjöllun um þessi mál í Morgunblaðinu í dag.
Borist hefur athugasemd frá Jóni Ásgeiri vegna umfjöllunarinnar og er hún birt hér.
Fréttin hefur verið uppfærð.