Í samantekt á skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar vegna úttektar á viðhaldsverkefni Félagsbústaða við Írabakka 2 – 16 kemur fram að ráðast þurfi í gagngerar endurbætur á starfsemi og innra eftirliti Félagsbústaða. Heildarkostnaður við verkið var 728 milljónir og fól í sér 83 prósent framúrkeyrslu.
Hér má sjá þær ábendingar sem innri endurskoðun gerði og Félagsbústaðir þurfa að bæta úr:
„Sækja þarf heimild til stjórnar áður en stofnað er til útgjalda sem ekki eru á fjárhagsáætlun - Þegar fyrirséð eru mikil frávik frá samþykktum áætlunum er nauðsynlegt að stjórn sé upplýst um það formlega og að sótt sé viðbótarheimild áður en stofnað er til útgjalda. Ef fjárhagsskuldbindingar eru ekki bornar undir stjórn er það annars vegar brot á starfsreglum stjórnar og hins vegar skerðir það verulega möguleika stjórnar til þess að rækja eftirlitshlutverk sitt.“
„Félagsbústöðum ber að hlíta lögum um opinber innkaup – Koma verður á innkaupaferli sem tryggir fylgni við ytra regluverk, jafnræði í innkaupum, svo og gæði og tímanleika þjónustu. Það felur m.a. í sér að fram fari útboð þegar kostnaðaráætlun fer yfir viðmiðunarfjárhæðir. Í þeim tilvikum sem óskað er eftir verðtilboði er nauðsynlegt að falast eftir slíku frá stórum hópi aðila til að auka líkur á að fá hagstætt og gott tilboð.“
„Stjórn Félagsbústaða þarf að setja félaginu innkaupastefnu – Til þess að stuðla að góðri innkaupastjórnun í samræmi við lög og eyða óvissu um verklag við innkaup þurfa Félagsbústaðir að setja sér innkaupastefnu og þar með skýrar línur varðandi innkaup fyrirtækisins.“
„Félagsbústaðir þurfa að setja sér innkaupareglur á grundvelli innkaupastefnu.“
„Nýta ætti aðferðafræði verkefnastjórnunar við stjórnun stærri framkvæmda.“
„Ástandsskoðun á að vera forsenda allra framkvæmda við undirbúning viðhaldsáætlunar.“
„Bæta þarf eftirlit með verktökum.“
„Innleiða þarf reglubundna skýrslugjöf til stjórnar um framgang framkvæmda.“
„Framkvæma þarf áhættumat á starfsemi framkvæmdadeildar.“
„Útbúa þarf verklagsreglur, verklýsingar og leiðbeiningar fyrir helstu verkefni framkvæmdadeildar.“
„Bæta þarf eftirlit með framkvæmdadeildinni.“
Skýrsla innri endurskoðunar var nýlega kynnt fyrir stjórn Félagsbústaða og komu þar fram alvarlegar athugasemdir við stjórnhætti í tengslum við umrætt verkefni. Í kjölfarið sagði framkvæmdastjóri Félagsbústaða starfi sínu lausu. Hefur Sigrún Árnadóttir, fyrrverandi bæjarstjóri í Sandgerði og áður framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands, verið ráðin sem starfandi framkvæmdastjóri þar til nýr framkvæmdastjóri verður ráðinn í kjölfar auglýsingar.