Landselur á válista vegna bráðrar hættu á útrýmingu

Landselur í öruggu skjóli í Norðurfirði í Árneshreppi.
Landselur í öruggu skjóli í Norðurfirði í Árneshreppi. mbl.is/RAX

Landselur, útselur og steypireyður eru á nýjum válista Náttúrufræðistofnunar yfir íslensk spendýr. Er landselur sagður í bráðri hættu á útrýmingu, útselur tegund í hættu og steypireyður í nokkurri hættu.

Ein tegund á válistanum, sandlægja, er þegar útdauð hér á landi. Andarnefja og búrhvalur eru einnig á listanum en sagt að gögn vanti til að meta stöðu þeirra. Hugsanlega gætu þær lent á válistanum.

Válistar eru skrár yfir lífverutegundir sem eiga undir högg að sækja eða eru taldar vera í útrýmingarhættu í tilteknu landi eða svæði.

Fram kemur í frétt frá stofnuninni að válistaflokkun spendýra sé unnin í samræmi við hættuflokka Alþjóðlegu náttúruverndarsamtakanna (IUCN). Alls er vitað um 52 tegundir land- og sjávarspendýra í náttúru Íslands, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert