Verð á sterkum verkjalyfjum „á götunni“ hefur lækkað undanfarna mánuði. Þetta kemur fram í mánaðarlegri könnun SÁÁ á verðlagi á ólöglegum vímuefnum.
Fram kemur að 80 mg tafla af OxyContin hafi t.d. kostað 8.000 kr. í janúar en 4.600 kr. í ágúst og 5.400 kr. í september.
Allir innritaðir sjúklingar á Sjúkrahúsinu Vogi taka þátt í könnun þar sem spurt er hve margir þeirra hafa keypt ólögleg efni og hvað þeir greiddu fyrir þau, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.