Enginn hlaut fyrsta vinning í Eurojackpot í kvöld en rúmir 10 milljarðar króna voru í pottinum að þessu sinni.
15 heppnir vinningshafar deila hins vegar með sér öðrum vinningi og fær hver þeirra 23 milljónir króna í sinn hlut. Tólf miðanna voru keyptir í Þýskalandi, einn á Spáni, annar á Ítalíu og sá þriðji í Svíþjóð.
19 hrepptu þriðja vinning og fær hver þeirra í vasann rúmar sex milljónir króna. Enginn miðanna var keyptur hér á landi.
Einn Íslendingur hrósaði þó happi í jókernum og var með fimm jókertölur réttar í réttri röð og fær hann tvær milljónir króna. Var sá vinningshafi með miðann í áskrift.
Tveir voru síðan með fjórar jókertölur réttar í réttri röð. Voru þeir miðar annars vegar í áskrift og hins vegar keyptir á lotto.is.
Vinningstölur kvöldsins: 9-12-28-32-48
Stjörnutölurnar: 7 og 8
Jókertölurnar: 3-5-9-4-5