Allur málskostnaður vegna Aurum Holding-málsins verður greiddur af íslenska ríkinu, en alls eru það tæpar 59 milljónir króna. Þrír sakborningar voru sýknaðir í dag, er Landsréttur kvað upp dóm sinn.
Áfrýjunarkostnaður fyrir Landsrétti greiðist af ríkissjóði og þar með talin málsvarnarlaun verjandanna þriggja, sem samanlagt nema tæpum 17 milljónum króna.
Þá er ríkið einnig dæmt til að greiða allan sakarkostnað vegna málsins í héraði, með þeim fjárhæðum sem ákveðnar voru í hinum áfrýjaða dómi, alls rúmar 42 milljónir króna.
Alls eru þetta tæpar 59 milljónir króna, en með dóminum í dag sneri Landsréttur við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 2016 hvað varðar Lárus Welding, sem var þar dæmdur í eins árs fangelsi, og Magnús Arnar Arngrímsson, sem hlaut þá tveggja ára fangelsisdóm.
Héraðsdómur sýknaði hins vegar Jón Ásgeir Jóhannesson en ákæruvaldið áfrýjaði þeirri niðurstöðu, sem í dag var staðfest af Landsrétti.