Vaktin hjá Neyðarlínunni var einungis skipuð konum í dag, og sökum eðlis starfsins þótti ekki gefast kostur á að hætta starfseminni klukkan 14.55.
Þetta kemur fram á Facebook-vef Neyðarlínunnar, en þar segir að starfsmenn hafi þó fengið köku í tilefni dagsins.