Fyrirtaka í máli hjóna sem eru grunuð um gróf kynferðisbrot gegn dóttur sinni og stjúpdóttur fer fram 5. nóvember. Þetta kom fram við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Þinghald var lokað eins og vaninn er í kynferðisbrotamálum.
Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari sagði að hjónin hefðu játað brot sín að hluta en gat ekkert tjáð sig frekar um málið þegar blaðamaður mbl.is ræddi við hana fyrir utan dómsalinn.
Forsaga málsins er sú að stjúpdóttirin kom á lögreglustöðina á Suðurnesjum og lagði fram kæru á hendur manninum og móður sinni. Við yfirheyrslu í júlí játaði fólkið að hafa framið brotin. Konan sætti gæsluvarðhaldi en var síðan sleppt þar sem hlutur mannsins í brotinu var talinn meiri.
Eftir að ákæra var gefin út í málinu 1. október var konan aftur úrskurðuð í gæsluvarðhald. Kom þá fram að héraðssaksóknari teldi að ef konan hefði gerst sek um jafnalvarleg brot og henni væru gefin að sök myndi það valda hneykslun og særa réttarvitund almennings gengi hún laus.
Fólkið hefur viðurkennt að hafa beitt dóttur konunnar grófu ofbeldi og enn fremur að hafa gert það á meðan önnur dóttir þeirra horfði á.