Kerecis hlaut Nýsköpunarverðlaunin

Kerecis er nýsköpunarfyrirtæki sem vinnur að þróun fjölmargra vara sem …
Kerecis er nýsköpunarfyrirtæki sem vinnur að þróun fjölmargra vara sem tengjast húð- og vefjaviðgerðum.

Fyrirtækið Kerecis hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands 2018 sem afhent voru á Nýsköpunarþingi í dag. Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kericis, veitti verðlaununum viðtöku úr hendi Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. 

Kerecis er nýsköpunarfyrirtæki sem vinnur að þróun fjölmargra vara sem tengjast húð- og vefjaviðgerðum. Meginstefið í starfsemi fyrirtækisins er hagnýting á náttúrulegum efnum sem styðja við endursköpun húðar og líkamsvefja. Fyrirtækið er með höfuðstöðvar og framleiðslu á Ísafirði og hóf rekstur fyrir átta árum.

Í rökstuðningi dómnefndar segir:

Kerecis hefur leitt öflugt nýsköpunarstarf sem tengir saman nýja notkunarmöguleika á sjávarafurðum í heilbrigðistækni. Fyrirtækið byggir á sterkum þekkingargrunni og virku samstarfi við lækna, fyrirtæki og rannsóknastofnanir. Undanfarið hefur fyrirtækið náð góðum árangri á markaði vegna sérstöðu afurða fyrirtækisins, enda hefur Kerecis einkaleyfavarið tækni sína í yfir 50 löndum. Fyrirtækið hefur fengið fjölda viðurkenninga á undanförnum árum og árið 2017 hlaut fyrirtækið Vaxtarsprota ársins, sem það nýsköpunarfyrirtæki sem óx hraðast á Íslandi. Samhliða aukinni markaðssetningu hefur störfum hjá fyrirtækinu fjölgað hratt og þar starfa núna yfir 50 manns við þróun, framleiðslu og sölu.

Það er mat dómnefndar að Kerecis hafi þróað framúrskarandi afurð sem hafi alla burði til að ná árangri á markaði á næstu árum og sé vel að verðlaununum komið.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert