Gert ráð fyrir 3,6 milljarða afgangi

Ráðhús Reykjavíkur.
Ráðhús Reykjavíkur. mbl.is/Ómar

Frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2019 og fimm ára áætlun 2019-2023 var lagt fram í borgarstjórn í dag. Áætlunin gerir ráð fyrir að borgarsjóður skili 3,6 milljarða jákvæðri rekstrarniðurstöðu árið 2019, en jákvæð niðurstaða samstæðu er áætluð 12,8 milljarðar króna eftir fjármagnsliði.

Jafnvægi er í rekstri borgarinnar, bæði hjá fyrirtækjum hennar og í rekstri A-hlutans þótt ýmis teikn séu á lofti í efnahagsmálum. A-hlutinn heldur utan um hinn eiginlega rekstur fagsviða borgarinnar, að því er segir í tilkynningu.

Bent er á tilkynningu fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar til Kauphallar í tengslum við fjárhagsáætlun þar sem segir m.a. „Fjárhagur A-hluta er sterkur. Skuldahlutfall A-hluta borgarinnar er langt fyrir neðan viðmið sveitastjórnarlaga.“

„Í mikilli sókn“

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir Reykjavíkurborg vera í miklum vexti og það sjáist greinilega á verkefnunum í fjárhagsáætlun og fjárfestingaráætlun. Aukin framlög séu til skólamála og velferðarmála.

„Í fyrsta lagi erum við að tryggja fjármagn til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla og til nýrra NPA samninga við fatlað fólk. Í öðru lagi erum við í mörgum grænum fjárfestingum á grundvelli aðalskipulagsins en sú stærsta á þeim vettvangi er Borgarlínan,” segir Dagur í tilkynningunni.

„Í þriðja lagi heldur uppbygging íþróttamannvirkja í austurhluta borgarinnar áfram og fjórða lagi höldum við áfram að efla velferðarþjónustu og auka framlög til leik- og grunnskóla í borginni. Við höldum líka gjöldum áfram í lágmarki þegar kemur að þjónustu borgarinnar þannig að það verði áfram hagstætt fyrir barnafjölskyldur, unga sem aldna að búa í Reykjavík,“ segir hann.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hann bætir við að fólki fjölgi í borginni á hverju ári. Það þýði að borgin þurfi að vaxa, nýjar íbúðir séu byggðar sem kalli á að borgin fjárfesti í innviðum eins og götum, torgum, lögnum, skólum og íþróttamannvirkjum auk þjónustu í hverfum.

„Fjárhagsáætlun og fjárfestingaráætlun til fimm ára ber þess skýr merki að Reykjavík er í mikilli sókn. Við fjárfestum fyrir 18,8 milljarða á næsta ári en sú fjárfesting endurspeglar áherslurnar í sáttmála flokkanna sem mynda meirihlutann í borgarstjórn,“ segir hann.

Fjölgun félagslegra íbúða

Í húsnæðismálum ráðgera Félagsbústaðir umtalsverða fjölgun félagslegra íbúða í eignasafni sínu á tímabili fimm ára áætlunar. Auk þess mun borgin leggja talsverða fjármuni í stofnframlög til uppbyggingar íbúða til félaga sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni. Þá hefur aldrei meira íbúðarhúsnæði farið í uppbygginu í borginni, að því er kemur fram í tilkynningunni.  

Uppbygging íþróttamannvirkja

Þá mun mikil uppbygging íþróttamannvirkja eiga sér stað í austurhluta borgarinnar en það er liður í áætlun innviðauppbyggingar í borginni. Stærstu verkefnin eru í Úlfarsárdal þar sem skóli, íþróttahús, menningarmiðstöð og sundlaug rísa. Í Breiðholti verður einnig byggt íþróttahús og knatthús á næstu árum á svæði ÍR í Suður Mjódd. Þá er bygging boltahúss fyrir hand- og körfubolta að ljúka í Grafarvogi.

Borgin heldur einnig áfram að byggja upp net hjólastíga og endurnýja lýsingu í borginni sem mun spara umtalsverða fjármuni í framtíðinni auk þess að gera borgina visthæfari og grænni.

Batnandi fjárhagur

Þrátt fyrir mörg verkefni Reykjavíkurborgar gerir fjárhagsáætlun 2019 ráð fyrir góðum afgangi af rekstrinum og að niðurstaðan verði jákvæð um 3,6 milljarða króna.

Rekstrartekjur A-hluta eru áætlaðir 127,7 milljarðar króna en þar af eru skatttekjur tæpir 100,8 milljarðar. Rekstrarútgjöld A-hluta eru áætluð 118,7 milljarðar, þar af laun og launatengd gjöld 69,0 milljarðar, breyting lífeyrisskuldbindinga 4,6 milljarðar og annar rekstrarkostnaður 45,1 milljarðar.

Framlegð samstæðunnar (EBITDA sem hlutfall af tekjum) er áætluð 13,7% árið 2019 og hækkar i 16,5% samkvæmt fimm ára áætlun.

Gert er ráð fyrir batnandi afkomu á tímabilinu 2020 til 2023.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert