„Veðrið er bara þannig að það er ekki hægt að eiga við það,“ segir Halldór Karl Hermannsson, hafnarstjóri í Reykjaneshöfn, í samtali við mbl.is. Vinnu við björgun flutningaskipsins Fjordvik, sem strandaði í Helguvík um helgina, var hætt síðdegis í dag sökum versnandi veðurs.
Mikill sjór er kominn í skipið og hefur búnaði til að dæla sjó skipinu verið komið fyrir á bryggjunni í Helguvík en ekki tókst að koma honum um borð í skipið vegna veðurs. Í dag tókst því einungis að undirbúa sjódælinguna sem og flutning spilliefna frá borði.
Halldór býst við að björgunarstarfið hefjist að fullu að nýju í fyrramálið.