Lögreglan á Suðurlandi vinnur að því að ræða við vitni sem urðu að hnífstunguárás í Þorlákshöfn á sunnudagskvöld. Karlmaður um sextugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á fimmtudag á grundvelli rannsóknarhagsmuna.
Að sögn yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Suðurlandi er tíminn nægur til þess að ná utan um málið. Gæsluvarðhaldi sé markaður eins skammur tími og mögulegt er.
Árásin átti sér stað í heimahúsi og er maðurinn talinn hafa veitt konu á fimmtugsaldri stunguáverka á kvið með hnífi. Konan var flutt af vettvangi á sjúkrahús, með sjúkrabifreið, þar sem hún dvelur enn en er ekki talin í lífshættu.