Búið er að dæla allri olíu, rúmlega 100 tonnum, úr flutningaskipinu Fjordvik sem strandaði í Helguvík síðustu helgi. Hagstæðar veðuraðstæður í gær auðvelduðu björgunarfólki að flytja nauðsynlegan björgunarbúnað um borð, meðal annars dælur og slöngur, að því er fram kemur í tilkynningu frá SMT Shipping sem sér um aðgerðir í höfninni.
Í dag hefur verið unnið að því að gera tilraunir við að dæla sjó úr skipinu og koma því á flot en ekki er ljóst hvort það muni takast.
Varðskipin Þór og Týr höfðu vaktaskipti á mánudag og er Þór kominn aftur í Reykjavíkurhöfn en Týr er til taks utan við Helguvík. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er hefur hlutverk Landhelgisgæslunnar í flutningi Fjordvik, þegar þar að kemur, ekki enn verið ákveðið en það verður til taks í dag ef færi gefst til að færa skipið.