Eliza Reid forsetafrú birtir á Facebook í dag fallegt bréf sem hún skrifaði til Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, á íslensku árið 1999. Þarna hafði hún nýlega kynnst Guðna og vildi heilla hann með málsnilld sinni. Eliza óskar Íslendingum til hamingju með daginn, Dag íslenskrar tungu.
„Kæru landsmenn! Til hamingju með daginn. Í dag er Dagur íslenskrar tungu, helgaður tungumálinu og mikilvægi þess í íslensku samfélagi. Af þessu góða tilefni datt mér í hug að deila með ykkur fyrsta bréfinu sem ég skrifaði á íslensku.
Ég samdi það ung að árum, 23 ára gömul, þegar ég kynntist Guðna og vildi heilla hann með málsnilld minni. Ég vissi ekki alveg hvað það var sem ég setti saman en ég átti gamla bók með orðatiltækjum á íslensku og ensku (þetta var fyrir daga gúgglþýðinga) og þannig tókst mér að hnoða þessu saman.
Hann var hér á Íslandi, ég að vinna úti á Englandi, og með bréfinu fylgdu nokkrar ljósmyndir, væntanlega frá ferð okkar um Snæfellsnes sumarið áður.
Hér kemur þetta: Kæri vinur Guðni, Þau eru ljósmyndirnar. Að mínu áliti, þau eru gott. Íslanzka mín er ekki gott, nema vaninn gefur listina. Eigi að siður, ég hef miklar mætur á enskri tungu. Berðu fjölskylda þín kveðju mína. Virðingafyllst og með ást.