Samkvæmt nýrri greiningu Capacent á stöðu og horfum á fasteignamarkaði í Reykjavík vantar um 4.000 íbúðir á næstu árum til að fullnægja þörf fyrir nýjar íbúðir í borginni. Eins og staðan er í dag verða hins vegar aðeins byggðar um 1.350 íbúðir í borginni á næstu tveimur árum.
Niðurstöðurnar eru meðal annars byggðar á samanburði á því hversu margar íbúðir þarf til að hýsa íbúa 25 ára og eldri og því hversu margar íbúðir eru nú í byggingu.
Greiningin var unnin að beiðni skrifstofu eigna og atvinnuþróunar hjá Reykjavíkurborg og er þetta í fjórða sinn sem Capacent vinnur skýrslu af þessu tagi fyrir borgina. Niðurstöður greiningarinnar voru kynntar á opnu málþingi borgarstjóra um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgun.
Líkt og fyrr segir er talið að þörf sé á um 4.000 íbúðum á næstu árum til að fullnægja þörf fyrir nýjar íbúðir í borginni. Í greiningunni kemur fram að ef tekið er mið af íbúðaþörf vegna íbúafjölgunar í Reykjavík 2018 og 2019 má gera ráð fyrir að það þurfi um 1.800 íbúðir. Við það bætist að á árunum 2007 til 2017 hefði þurft að byggja um 2.000 íbúðir til viðbótar við það sem gert var.
Þar að auki má gera ráð fyrir að um 1.000 til 1.700 íbúðir séu nýttar undir íbúðagistingu í Reykjavík ef tekið er mið af upplýsingum frá Hagstofunni um skráðar og óskráðar gistingar í íbúðagistingu og upplýsingum frá Ferðamálastofu um fjölda gistinátta í Airbnb. Gert er ráð fyrir að um 1,5 til 2,5 einstaklingar gisti í hverri íbúð í senn.
Í skýrslunni segir að frekari uppbygging hótelherbergja og áhrif herts eftirlits með heimagistingu ætti að hafa áhrif til fækkunar íbúða í heimagistingu. Áætlað er að það muni draga úr þörf fyrir íbúðir á næstu árum um 200 íbúðir.
Gefin hafa verið út byggingarleyfi fyrir 1.344 íbúðir í borginni á fyrstu tíu mánuðum ársins og er árið orðið metár í byggingu nýrra íbúða í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum frá byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar verða um 700 íbúðir fullgerðar í Reykjavík á árinu 2018.
Í fyrra voru gefin út tæp 1.100 byggingarleyfi og gera má ráð fyrir að þau skili sér í um 650 fullbúnum íbúðum árið 2019. Því verði til um 1.350 íbúðir á tímabilinu. Heildarmatið er hins vegar að byggja þarf 3.200 til 4.000 íbúðir á árunum 2018 og 2019 til að fullnægja þörf í Reykjavík.