Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, býður til opins kynningarfundar í ráðhúsinu í dag um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík. Á fundinum verður dregin upp heildstæð mynd af framkvæmdum og framkvæmdaáformum á húsnæðismarkaði í Reykjavík.
Fundurinn stendur frá klukkan 9 til 11 og er hægt að fylgjast með honum í beinni útsendingu hér fyrir neðan.
Áfundinum verður lögð áhersla á samþykkt verkefni og framkvæmdir sem eru nýlega hafnar, en einnig verður gefin innsýn í verkefni á undirbúningsstigi.
Ásamt erindi frá borgarstjóra verður ný greining á fasteignamarkaðinum kynnt sem Capacent vann fyrir Reykjavíkurborg, en sambærileg greining var unnin fyrir tveimur árum. Snædís Helgadóttir, ráðgjafi hjá Capacent, kynnir.
Fundarstjóri er Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs.