Nú standa bráðabirgðaviðgerðir á flutningaskipinu Fjordvik yfir, en enn er verið að meta hvaða viðgerðir þarf að ráðast í, að sögn Ásbjarnar Helga Árnasonar, verkefnastjóra Vélsmiðju Orms og Víglundar.
Eigendur og tryggingafélög eru mætt á staðinn og eru enn að meta hvort ráðist verði í frekari viðgerðir á skipinu, en áður hefur komið fram að skemmdirnar eru svo miklar að óvíst er hvort borgi sig að gera við skipið. Botn skipsins er töluvert skemmdur.
Flutningaskipið Fjordvik strandaði í Helguvík fyrir tveimur vikum síðan en á fimmtudag var skipið sett í flotkví og mikilli olíu dælt úr vélarrúmi skipsins.