Orkuveita Reykjavíkur hefur boðað til blaðamannafundar í dag kl. 15:00 þar sem niðurstaða úttektar innri endurskoðunar á vinnustaðarmenningu og tilteknum starfsmannamálum verður kynnt.
Í forsvari verða:
Streymt verður frá fundinum á YouTube-rás Orkuveitu Reykjavíkur, að því er fram kemur í tilkynningu frá OR.
Málið tengist uppsögn Áslaugar Thelmu Einarsdóttur, sem var sagt upp störfum sem forstöðumanni einstaklingsmarkaðar Orku náttúrunnar í haust. Tveimur dögum síðar var framkvæmdastjóra ON, sem er dótturfyrirtæki OR, Bjarna Má Júlíussyni, sagt upp störfum vegna óviðeigandi framkomu við starfsfólk.
Þá steig Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, til hliðar á meðan málið væri til skoðunar og Helga Jónsdóttir tók við tímabundið.