Áslaug Thelma Einarsdóttir, sem var sagt upp störfum sem forstöðumanni einstaklingsmarkaðar Orku náttúrunnar í haust, frétti af blaðamannafundi Orkuveitu Reykjavíkur, sem hefst klukkan 15 í dag, í fjölmiðlum.
„Ég hef ekki séð lokaskýrsluna og mér var ekki gert viðvart um að hún og þá væntanlega gögn um mína persónulegu hagi yrðu gerð opinber í dag,“ skrifar Áslaug Thelma í færslu á Facebook sem hún birti fyrir skömmu.
Á fundinum verður niðurstaða úttektar innri endurskoðunar á vinnustaðarmenningu og tilteknum starfsmannamálum kynnt. Stjórn OR óskaði eftir því að úttektin yrði gerð á vinnustaðarmenningu og tilteknum starfsmannamálum innan fyrirtækisins.
Ákvörðun um úttektina var tekin eftir að Áslaugu Thelmu var sagt upp störfum, en hún birti færslu á Facebook stuttu eftir uppsögnina þar sem hún fullyrti að hún hefði verið rekin fyrir að kvarta undan hegðun Bjarna Más Júlíussonar, þáverandi framkvæmdastjóra ON. Hann var rekinn skömmu eftir að Áslaugu Thelmu var sagt upp vegna óviðeigandi framkomu sem tengdist meðal annars tölvupóstum sem hann sendi til kvenkyns undirmanna sinna.
Fundurinn hefst klukkan 15 og streymt verður frá fundinum á YouTube-rás Orkuveitu Reykjavíkur, að því er fram kemur í tilkynningu frá OR.