Íslensk verk á 31 tungumáli

Nýjar þýðingar á íslenskum bókum.
Nýjar þýðingar á íslenskum bókum. Ljósmynd/Miðstöð íslenskra bókmennta

Eitt af hlutverkum Miðstöðvar íslenskra bókmennta er að veita þýðingastyrki til að auka útbreiðslu bókmenntanna erlendis. Á þessu ári var metfjöldi úthlutana til þýðinga á erlend mál þegar Miðstöðin úthlutaði 106 styrkjum til þýðinga íslenskra verka á 31 tungumál.

Til samanburðar má geta þess að fyrir tíu árum, árið 2008, var veittur 31 styrkur til þýðinga úr íslensku á 14 tungumál. Þetta er því meira en þreföldun á tíu árum á þeim fjölda íslenskra bóka sem ná til nýrra lesenda um heim allan. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

„Þýðingastyrkir geta skipt sköpum í þessu samhengi því þeir gera erlendum útgefendum oftar en ekki kleift að ráðast í verkið, að ógleymdum þýðendum sjálfum. Góðir þýðendur eru lykilfólk þegar kemur að útbreiðslu bókmennta og miðlun á önnur tungumál.

Á dögunum hlaut Auður Ava Ólafsdóttir bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2018 fyrir skáldsöguna Ör sem þegar hefur verið þýdd á dönsku, sænsku, frönsku, ungversku, norsku, ensku og ítölsku, og er væntanleg á tékknesku, spænsku, portúgölsku, kóresku og tyrknesku. Fyrri bækur Auðar hafa verið þýddar á fjölda tungumála og hún hefur eignast tryggan lesendahóp um heim allan, líkt og fjöldi annarra íslenskra höfunda,“ segir í fréttatilkynningu.

Tungumálin sem íslensku verkin verða þýdd á, með stuðningi Miðstöðvar íslenskra bókmennta, eru albanska, amharic, arabíska, armenska, aserska, búlgarska, danska, enska, finnska, franska, færeyska, georgíska, gríska, hebreska, hollenska, ítalska, kínverska, króatíska, lettneska, makedónska, norska, portúgalska, pólska, rússneska, spænska, sænska, tékkneska, tyrkneska, ungverska, úkraínska og þýska.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert