Níu milljónasti farþeginn fór um Keflavíkurflugvöll

Grétar Már Garðarsson, viðskiptastjóri flugfélaga á Keflavíkurflugvelli, Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir, …
Grétar Már Garðarsson, viðskiptastjóri flugfélaga á Keflavíkurflugvelli, Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir, deildarstjóri viðskipta á Keflavíkurflugvelli, Olive Ho, Chun Liang Li, Ólöf S. Lárusdóttir, verkefnastjóri viðskiptadeildar Keflavíkurflugvallar, og Gunnar K. Sigurðsson, markaðsstjóri Isavia. Ljósmynd/Isavia

Starfsfólk Isavia fagnaði í dag níu milljónasta farþeganum sem fór um Keflavíkurflugvöll í ár. Hann kom til landsins frá Pittsburg í Bandaríkjunum með flugvél Wow Air. Þau heppnu eru Olive Ho frá Hong Kong og Chun Liang Li frá Taívan.

Þau millilentu á Keflavíkurflugvelli í morgun en halda síðan áfram för sinni til Kaupmannahafnar, að því er Isavia greinir frá.

„Þau voru leyst út með gjöfum frá Bláa lóninu og veitingastaðnum Hjá Höllu. Þau voru afar ánægð með móttökurnar við komuna til landsins, sem kom þeim eðlilega mjög á óvart. Olive Ho segir að hún hafi einu sinni áður komið til Íslands en muni sannarlega gera sér ferð aftur hingað til lands.

Níu milljón farþegar hafa nú það sem af er árinu farið í gegnum Keflavíkurflugvöll og er það í fyrsta sinn sem því takmarki er náð. Þar er samtals um að ræða komu-, brottfarar- og skiptifarþega,“ segir í tilkynningu frá Isavia.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert