Þarf að auka enn við framboðið

Drífa Snædal tók nýlega við sem forseti ASÍ.
Drífa Snædal tók nýlega við sem forseti ASÍ. mbl.is/Valli

Húsnæðismálin eru stóru málin nú um stundir. Bjarg íbúðafélag, sem er í eigu ASÍ og BSRB, hamast við að leggja sitt af mörkum til uppbyggingar íbúða fyrir tekjulága einstaklinga og fjölskyldur og er nú með 271 íbúð í byggingu og 397 í hönnunarferli. Þetta kemur fram í pistli Drífu Snædal, forseta ASÍ.

Stefnt er að því að byggja um 1400 leiguíbúðir á næstu fjórum árum. Þetta telur í stóra samhenginu en Íbúðalánasjóður segir uppsafnaða þörf um 6-9 þúsund íbúðir. Það þarf því að byggja mikið og hratt til að vinna á neyðarástandi á húsnæðismarkaði,“ skrifar Drífa.

Hún segir að með eigin íbúðafélagi fái stéttarfélögin góða tilfinningu fyrir áskorunum í byggingariðnaði varðandi framkvæmdir og aðbúnað starfsfólks. Áhersla er lögð á samvinnu við eftirlitsfulltrúa stéttarfélaganna og iðnaðarmannafélögin hafa hvergi dregið af í eftirliti á byggingarsvæðum Bjargs.

Reyndar er Bjarg með ákvæði í útboðsgögnum um keðjuábyrgð þannig að þeir verktakar sem fá verkið eru ábyrgir fyrir því að allir undirverktakar greiði kjarasamningsbundin laun og aðbúnaður sé góður. Með því að vanda útboðsskilmála, hafa gott eftirlit og velja verktaka af kostgæfni hefur Bjargi tekist að auka framleiðni, bæta starfsanda og fækka vinnuslysum,“ skrifar Drífa og bætir við að verkefnin séu á undan áætlun.

Hún segir að meira þurfi að koma til og stærsta verkefnið sé að auka enn við framboð og nýta húsnæðisstuðnings hins opinbera þannig að hann nýtist þeim sem eru tekjulægstir og eigi í mestum vandræðum.

Leiga hefur hækkað miklu meira en laun og hafa kjarabætur stórra hópa brunnið upp á húsnæðismarkaðnum. Húsnæðismál eru því með stærstu kjaramálunum!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert