Segir ferilskrá FME ekki glæsilega

Ragnar Þór vandar FME ekki kveðjurnar í færslu sem hann …
Ragnar Þór vandar FME ekki kveðjurnar í færslu sem hann ritar á Facebook-síðu sína. Mynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, spyr hvar Fjármálaeftirlitið (FME) hafi verið þegar við raunverulega þurftum á því að halda til að verja hagsmuni almennings og sjóðsfélaga lífeyrissjóða. Hann skrifaði færslu á Facebook-síðu sína fyrr í kvöld þar sem hann brást við fréttatilkynningu sem birtist á vef FME fyrr í dag þar sem lagalegt hlutverk lífeyrissjóðanna var áréttað.

Tilkynningin var birt eftir að Ragnar Þór lét þau ummæli falla í fréttaskýringaþættinum Kveik í gærkvöldi að verkalýðssamtök ættu að beita áhrifum sínum inn í lífeyrissjóðina. Þau ummæli hafa valdið töluverðum titringi í dag.

Fjár­mála­eft­ir­litið sagði að slíkt sé óheim­ilt og Guðrún Haf­steins­dótt­ir, stjórn­ar­formaður Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna, sagði þetta ekki vera þann tón sem hún átti von á frá Ragn­ari.

„Ég átti al­veg von á að heyra frá stjórn­end­um kerf­is­ins,“ sagði Ragn­ar Þór í viðtali á K 100 í dag og kvað ákveðna aðila sem stýri kerf­inu hafa hag af óbreyttu ástandi.

Sagði hann líf­eyr­is­sjóðina hafa verið notaða í gegn­um tíðina,  til að mynda við gjald­miðlasamn­inga sem þeir hafi verið plataðir í í aðdrag­anda hruns­ins og svo við fjár­fest­inga­æv­in­týri á borð við kís­il­ver United Silicon. „Þar töpuðust millj­arðar,“ sagði Ragn­ar Þór. Slík­um mál­um hafi hins veg­ar verið sópað und­ir teppið frek­ar en að tak­ast á við þau.

„Þegar kem­ur að því til dæm­is að kjara­samn­ing­ar eru laus­ir og það er ólga á vinnu­markaði þar sem stefn­ir í átök, þá spyr maður sig er skyn­sam­legt og ábyrgt af líf­eyr­is­sjóðunum að fjár­festa í at­vinnu­líf­inu þegar svo ber und­ir? Er það skyn­semi að fjár­festa í fyr­ir­tækj­um þegar verk­föll eða átök eru yf­ir­vof­andi?“ sagði hann jafnframt í viðtalinu í dag.

„Viðbragðshraði FME er nokkuð áhugaverður þegar kemur að þeirri spurningu hvort lífeyrissjóðir eigi að skrúfa fyrir fjárfestingar í atvinnulífinu þegar vinnudeilur eru yfirvofandi eða átök,“ skrifaði Ragnar Þór á Facebook í kvöld.

„Ekki heyrðist mikið í FME þegar sjóðirnir okkar voru notaðir sem opin veski útrásarinnar! Ekki verður nú sagt að ferilskrá FME sé sérlega glæsileg. Væri þá ekki ábyrg nálgun að fjárfesta ekki þegar óvissa er mikil? Það er ekkert sem bannar það!“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert