Una María Óskarsdóttir er fyrsti varaþingmaður Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi og samkvæmt færslu á Facebook á hún að mæta til þingstarfa á mánudag í stað Gunnars Braga Sveinssonar.
Jón Þór Þorvaldsson, flugstjóri hjá Icelandair, er einnig væntanlega á leið á Alþingi á mánudag í stað Bergþórs Ólasonar, þingmanns Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi.
Bergþór Ólason sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem hann segist hafa ákveðið að taka sér leyfi frá þingstörfum. Hann ætli sér að líta í spegil og taka sjálfan sig til gagnrýninnar endurskoðunar.
Gunnar Bragi Sveinsson sendi einnig frá sér tilkynningu í gærkvöldi þar sem hann segist hafa sýnt mikið dómgreindarleysi á barnum Klaustri. Málið hafi verið sér mikið áfall og það muni taka hann tíma til að vinna úr því með vinum og fjölskyldu.