Afhenti 20 þúsund rafræn skjöl

Rasmussen og Katrín.
Rasmussen og Katrín. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Heimsókn Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, er lokið. Hann lenti á Reykjavíkurflugvelli á föstudaginn og hélt beint í Ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu á tvíhliða fund með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra.

Rasmussen heimsótti því næst Marel þar sem hann fékk einnig kynningu á fyrirtækjunum HS Orku og Carbon Recycling International. Þá sat hann hátíðarkvöldverð í Ráðherrabústaðnum í boði Katrínar, að því er kemur fram í tilkynningu.

Dönsku forsætisráðherrahjónin fóru ásamt föruneyti í reiðtúr og sátu hádegisverð með Margréti Þórhildi Danadrottningu í Hörpu í gær. Að honum loknum tók forsætisráðherrann þátt í setningu fullveldishátíðar við Stjórnarráð Íslands og sótti síðan sýninguna Vatnið í náttúru Íslands á vegum Náttúruminjasafns Íslands í Perlunni í fylgd Katrínar.

Að því loknu heimsótti Lars Løkke Þjóðskjalasafn Íslands þar sem hann afhenti safninu að gjöf rafrænt skjalasafn. Það hefur að geyma um 20 þúsund síður af skjölum sem lýsa meðal annars því ferli sem leiddi til setningar sambandslaga og fullveldis Íslands.

Þá sat danski forsætisráðherrann hátíðarkvöldverð á Bessastöðum í boði Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, og sótti að lokum hátíðarsýninguna Íslendingasögur, sinfóníska sagnaskemmtun í Hörpu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert