Einar Hansberg hefur lokið 500 kílómetra löngum róðri til styrktar Kristínu Sif og fjölskyldu hennar. Ætlunarverkið tókst nú rétt eftir klukkan tíu, en Kristín Sif reri síðustu tíu kílómetrana með Einari.
Í lok október missti Kristín Sif, einn þáttarstjórnenda Ísland vaknar á K100, manninn sinn, mann á besta aldri, skyndilega. Einar er góður vinur Kristínar og ákvað að sýna stuðning í verki með því að róa 500 kílómetra.
Hann hefur unnið mikla þrekraun, enda búinn að róa nánast sleitulaust í yfir 50 klukkustundir. Fjöldi fólks hefur lagt leið sína niður í Crossfit Reykjavík síðan á föstudag til að sýna stuðning.
Fyrir þá sem vilja leggja Einari og Kristínu Sif og fjölskyldu lið er minnt á styrktarreikninginn 0326-26-003131 á kennitölu 021283-3399.